{"product_id":"knus-studningspudi-dokkgrar","title":"Knús stuðningspúði dökkgrár","description":"\u003ch2\u003eKnús púði\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eKnús stuðningspúðinn hefur mörg notagildi.\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSem stuðningur fyrir alla:\u003cbr\u003eKnús púðinn er þægilegur sem almennur stuðningur fyrir alla, hvort sem markmiðið er að sofa betur með stuðning við bak og mjaðmir, hafa stuðning við prjónaskap, lestur eða jógastundun. Eða bara fyrir almenn kósíheit.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFyrir verðandi foreldra:\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003eAuk þess að nýtast sem hefðbundinn gjafapúði er hægt að nota hann til að hvíla lúin bein á meðgöngu. Hægt er að renna endunum á púðanum saman og nota hringinn sem hvílu fyrstu mánuðina (aldrei má skilja barnið eftir á púðanum eftirlitslaust) og síðar sem stuðning þegar barnið lærir að sitja.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar púðinn er hættur að nýtast sem brjóstagjafapúði er hægt að rúlla honum saman og setja inní sér áklæði sem umbreytir honum í sessu í barnaherbergið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKnús púðinn er íslensk hönnun og framleiðsla. Við handsaumum púðann hérna heima á Íslandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKnús púðinn\u003cspan\u003e c.a. 145cm langur og um 90cm á breidd\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHægt er að taka áklæðið af púðanum og þvo. Við mælum með að þvo áklæðið á 40 gráðum þar sem það er 100% bómull og gæti því minnkað lítilega í fyrstu þvottum. Hægt er að kaupa auka áklæði hjá okkur, til að hafa til skiptana.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eKnús púðinn er framleiddur úr 100% OEKO-TEX® vottuðum efnum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eInni í púðanum eru litlar frauðplastkúlur, EPS efni. Þær eru lokaðar inni í innri púða sem ekki er hægt að opna. EPS-efni er 98% loft og einungis 2% plast, samansett úr mörgum örsmáum sellum. Við framleiðslu á einangrunarplasti er hvorki notað freon né önnur skaðleg efni sem valda gróðurhúsaáhrifum. EPS er 100% endurvinnanlegt efni, það ertir ekki húð við snertingu og ekki er krafist sérstaks útbúnaðar við vinnu með það eins og tækninefnd ESB (CENTC 88) hefur bent á.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Sérverzlun","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47125532344508,"sku":null,"price":18999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0612\/4755\/3724\/files\/grar.webp?v=1784122031","url":"https:\/\/www.serverzlun.is\/products\/knus-studningspudi-dokkgrar","provider":"Sérverzlun","version":"1.0","type":"link"}