Bambus lyocell

Bara það besta fyrir þig og fyrir umhverfið
Fjölnota stuðningspúði

Knús

íslensk hönnun og framleiðsla

Cashmere og bambus blanda

Kósý heimafatnaður

„Besti hluti dagsins? Þegar þú mátt loksins fara í heimafötin.“

Knús - fjölnota stuðningspúði

Knús púðinn er þægilegur sem almennur stuðningur fyrir alla, hvort sem markmiðið er að sofa betur með stuðning við bak og mjaðmir, hafa stuðning við prjónaskap, lestur eða jógastundun. Eða bara fyrir almenn kósíheit.

Ég er til í knús

Af hverju að velja bambus?

Umhverfisvænasta efni sem hægt er að nota í fatnað og textíl.


Tískuiðnaðurinn er talinn einn mengunarmesti iðnaður í heimi, með heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá alþjóðlegri textílframleiðslu upp á 1,2 milljarða tonna á ári. Ofnotkun bómullar og tilbúins trefja og eftirspurn eftir hraðtísku setur enn frekari þrýsting á auðlindir jarðarinnar.
Neikvæð umhverfisáhrif eiga sér stað á nokkrum stigum líftíma vöru - frá efniviði, uppsprettu og framleiðslu til flutninga, notkunar neytenda og endingartíma. Hjá Movesgood færum við sjálfbærni okkar á öll þessi stig. Ein af skuldbindingum okkar, sem er kjarninn í starfsemi okkar og fatnaði, er að nota ekki bómull eða tilbúnar trefjar/gerviefni. Í staðinn notum við náttúrulegt lyocell-unnið bambus - eitt umhverfisvænasta efni á jörðinni.