Terms of service

Almennir skilmálar

Almennt:

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Sérverzlun (K12 ehf.), serverzlun.is

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Sérverzlun (K12 ehf.) gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Sérverzlun (K12 ehf.) samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Sérverzlun (K12 ehf.), kt.531120-1080, er staðsett að Kópavogstúni 12, 200 Kópavogi.
Símanúmer er 698-1644.

Sérverzlun (K12 ehf) áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð:

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Sérverzlun (K12 ehf.) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

Vörur til einkanota:

Vörurnar í vefverslun Sérverzlun (K12 ehf) eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Sérverzlun (K12 ehf) á tilskilinna leyfa. Sérverzlun (K12ehf.) áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

Nákvæmari upplýsingar:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leiti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Greiðsluleiðir:

Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Sérverzlun (K12 ehf.) er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.