Knús stuðningspúði dökkgrár

Knús stuðningspúði dökkgrár

Regular price18.999 kr
/
Tax included. Shipping calculated at checkout.

  • Low stock - 10 items left
  • Backordered, shipping soon

Knús púði

Knús stuðningspúðinn hefur mörg notagildi. 

Sem stuðningur fyrir alla:
Knús púðinn er þægilegur sem almennur stuðningur fyrir alla, hvort sem markmiðið er að sofa betur með stuðning við bak og mjaðmir, hafa stuðning við prjónaskap, lestur eða jógastundun. Eða bara fyrir almenn kósíheit.

Fyrir verðandi foreldra:
Auk þess að nýtast sem hefðbundinn gjafapúði er hægt að nota hann til að hvíla lúin bein á meðgöngu. Hægt er að renna endunum á púðanum saman og nota hringinn sem hvílu fyrstu mánuðina (aldrei má skilja barnið eftir á púðanum eftirlitslaust) og síðar sem stuðning þegar barnið lærir að sitja.

Þegar púðinn er hættur að nýtast sem brjóstagjafapúði er hægt að rúlla honum saman og setja inní sér áklæði sem umbreytir honum í sessu í barnaherbergið.

Knús púðinn er íslensk hönnun og framleiðsla. Við handsaumum púðann hérna heima á Íslandi.

Knús púðinn c.a. 145cm langur og um 90cm á breidd

Hægt er að taka áklæðið af púðanum og þvo. Við mælum með að þvo áklæðið á 40 gráðum þar sem það er 100% bómull og gæti því minnkað lítilega í fyrstu þvottum. Hægt er að kaupa auka áklæði hjá okkur, til að hafa til skiptana.

Knús púðinn er framleiddur úr 100% OEKO-TEX® vottuðum efnum.

Inni í púðanum eru litlar frauðplastkúlur, EPS efni. Þær eru lokaðar inni í innri púða sem ekki er hægt að opna. EPS-efni er 98% loft og einungis 2% plast, samansett úr mörgum örsmáum sellum. Við framleiðslu á einangrunarplasti er hvorki notað freon né önnur skaðleg efni sem valda gróðurhúsaáhrifum. EPS er 100% endurvinnanlegt efni, það ertir ekki húð við snertingu og ekki er krafist sérstaks útbúnaðar við vinnu með það eins og tækninefnd ESB (CENTC 88) hefur bent á.


Fleiri áhugaverðar vörur


Recently viewed